Barcelona
29.01.2006 00:02:16 / johannfan

Beaty and the geek

Jæja þá er helgin á enda og maður hefur lítið gert annað enn að læra og reyna að klára lokaverknin sem við eigum að henda inn eftir rúma viku. En allavegana svo ég hef e-h annað að tala um en lærdóm þá horfði ég fyrstu 3 þættina af nýrri seríu af Beauty and the geek og VÁ hvað þetta eru miklir snildar þættir. Ef þið eruð að downloada þáttum af netinu hættið að download The O.C. og One tree hill og byrjið að downloadið Beauty and the geek. Fyrsta serían var frábær og önnur er ekki síðri allavegana fyrstu þrír þættinir af henni. Þetta eru þættir sem maður getur hleyið af endalaust og horft á aftur og aftur.

Í gær fór ég á Nou Camp og gerðist member í FC BARCELONA klúbbnum það kostaði mig smá pening og get ég núna loksins keypt miða á leikinn Chealse vs Fc Barcelona sem fer fram 7 mars, úff hvað það verður vandgefinn leikur rematch dauðans!!! svo fékk ég auk þess mikið að gjöfum frá klúbbnum þ.á.m. flottan hliðar poka, fullt af skálum og diskum eða stell af ýmsum hlutum merkt klúbbnum, gaman af því... Jæja ég held að þetta sé komið nóg í bili, verð að halda áfram að læra. adios amigos hasta luego...


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 18:35:28 / johannfan

"Frábær" IKEA ferð...

Í gær fór ég og Gugga í IKEA til að versla nýtt stofuborð í villuna okkar. Eftir að Erla flutti til Íslands hefur húsgögnin smátt og smátt horfið og er íbúðin orðin frekar tómleg :/ en við erum búin að vera dugleg að kaupa inn í hana einhverju ódýru drasli og er hún öll að koma til. Allavegana við kíktum í IKEA í gær og fundum mjög flott borð og var það  líka á góðu verði (89 evrur). Það voru tvö önnur borð sem komu til greina en þau kostuðu  meira  ca. 140 evrur, svo að við ákváðum að skella okkur á ódýrara borðið. Þegar við komum heim byrjuðum við að setja það saman, þegar við vorum hálfnuð að setja það saman fannst okkur að það vantaði e-h , við kláruðum að henda því upp og þá kom í ljós að þetta var bara annar helmingurinn :S  Við hringdum í IKEA og töluðum við einhvern starfsmann þar og sagði hann að borðið sem var sett upp í IKEA væri í rauninni tvö borð bara sett saman, hvað er það!!! :evil:  Er verið að selja hálf borð í IKEA og setja þau upp saman svo þau sýnast vera eitt heilt borð ? En allavegana ég henti því upp og setti það inn í stofuna og ætla að leyfi því að vera þar þangað til að við kaupum kannski hinn helmimginn seinna. ....

hehe  magnað borð. ekki satt ?


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 19:26:57 / johannfan

Internetið komið í lag...

Á föstudaginn komst internetið loksins í lag, netið er búið að vera í ólagi í ca. viku og þegar maður er án internetsins þá er maður eiginlega hálf lamaður, alveg sambandslaus... Seinustu 2 vikurnar eru búnar að vera crazy, það er búið að vera skuggalega mikill lærdómur og mun vera nóg að gera næstu næstu tvær vikunar til viðbótar og þá er fyrsta önnin á enda, (get ekki beðið eftir því að byrja aðra önn í nýjum og skemmtilegri áföngum)... Ég hef ekki mikinn tíma til þess að skrifa, á eftir að læra mikið fyrir morgun daginn en það er allavegana allt gott að frétta af mér og allt að komast á rétt ról... Ég tók nokkrar myndir þegar ég fór út í gær og ætla að henda þeim inn núna... later

Þessi mynd er tekinn við hliðin á bokkinni minni og þessa göru þarf ég að labba á hverjum degi þegar ég fer í skólan minn. 

Þessi líka en bara í hina áttina.

Ég og Jóhann legðum okkur bíl um daginn og vorum á rúntinum í gær, (Jóhan á myndinni)

Ágætur bíll, liggur vel og nægur kraftur í þessum :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 13:21:28 / johannfan

Netid nidri....

Jaeja Loksins komst ég á fu----g internetid. !!! Ég hef akki langan tíma til ad skrifa, bara láta vita ad ég er á lífi og allt gengur vel, fyrir utan kannski tolvu mál :/ ... Netid er nidri heima og er búid ad vera nidri seinustu daga EN tad reddast orugglega í kvold... Farinn í tíma... Later

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 12:40:18 / johannfan

Kanínur...

Ég var að skoða frétta á visir.is og kom auga á þessa grein sem ég er algjrlega sammála :)

Kanínur alls engin plága!!!

Kanínur eru alls engin plága nema í lundabyggð segir formaður Skotveiðifélagsins. Hann telur upplagt fyrir bændur í ferðaþjónustu að koma upp stofni sem megi veiða enda sé kanínan skemmtileg bráð og dýrindismatur, maríneruð í rauðvíni. Sigmar segir að í harðindakafla hrynji stofnin. Hin eina sanna plága hér sé loðdýraræktin, því minnkar og refir sleppi oft útí náttúruna og valdi henni miklum skaða.

Hann er á því að það væri upplagt fyrir íslenskan bændur að koma sér upp kanínustofni þar sem skilyrði eru hagstæð og gefa síðan skotleyfi á þessi loðnu, sætu, yndi. Veiðin væri hin mesta skemmtan og bráðin hollur og fitusnauður matur.

Þetta er líka rugl góður matur, get líkt honum við Kjúkling en kanínu kjötið er mun fituminna og betra á bragðið...  ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 23:45:44 / johannfan

Kominn heim :)

Jæja þá er maður kominn aftur út til Barcelona eftir 3 vikna frí. Frí´ið mitt var mjög gott í allastaði, gaman að hitta vinina, fjölskylduna, borða íslenskan mat og gleyma öllum skólabókum. Ég lagði af stað frá Íslandi sunnudags morguninn klukkan 6:30  mínir æðislegu, flottu og frábæru foreldrar keyrðu mig út á völl og klukkan 8:30 fór ég svo í loftið, ég lenti á Heatrow klukkan 12 og beið þá mín 5 klukkustunda bið eftir næsta flugi til Barcelona "GREAT" sem betur fer hitti ég meðleigandan minn á flugvellinum og fengum við okkur í glas og spjölluðum á meðan við biðum eftir næsta flugi, eftir þriggja klukkustunda bið og 3 glös af hvítvíni fengum við þær upplýsingar að flugið seinkaði um 2 tíma svo að við hengum samanlagt á Heatrow í nærum því 8 klukkustundir, :S shit hvað það var leiðinlegt. Eftir 2 tíma flug frá London til Barcelona er óhætt að segja að við vorum alveg búin, við lentum  á flugvellinum í Barce klukkan 22 og vorum komin heim klukkan 22:45 . Annars er bara allt gott að frétta af mér, það er rosalega fínt veður hérna núna, bolaveður en bíst ég ekki við því að það haldist þannig lengi, kólnar örugglega aftur bráðlega... ég byrjaði í skólanum í dag og bíður mín nóg af verkefnum fyrir þessa viku. Í dag vorum við aðeins 10 af 22 í bekknum og frétti ég í dag að það voru allavegana 4 hættir í í skólanum, frekar fúlt og veit ég ekkert um hina, þeir hljóta að sjá sig á morgun, vona ég... Klukkan er orðinn 1 um nóttu og er ég orðinn óeðlilega þreyttir eftir erfiðan skóladag og meika ég ekki að blogga meir, held að þetta sé nóg í bili ZzZzZzZzZ Later....

gugga


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 15:41:51 / johannfan

Pirrandi...

Djöfull er ég fucking pirraður í dag,  um daginn datt fartölvan mín á gólfið með þeim afleiðingum að hún beyglaðist og hleðslutækið eyðilagðist,  kostaði  ekki nema 40 þús kall að gera við hana :evil:,  sama dag  seinna um daginn rak ég mig svo í utan að liggjandi harða diskinn minn, hann féll á hliðina og bilaði, hvað er fucking málið?  :S ég fór með hann á verkstæði  og  fékk ég svo hringingu í dag og mér tilkynnt að það væri vonlaust  að gera við hann,  ef ég vill láta gera við hann þarf ég að láta senda hann út til útlanda eða til fyrirtækið sem gerðu hann ,  kostað ekki nema CA. 250.000 kall :evil: Andskotinn sjálfur !!! hef enganvegin efni á því! Allar ljósmyndinar mínar, öll skólaverkefnin, öll mp3 lögin mín (safnið mitt) og ALLT farið... :cry:

Dagurinn í dag byrjaði þannig að ég fór í bólusetningu/sprautu fyrir hettusótt veikinni sem gengur núna. Veit ekki alveg afhverju við strákarnir fæddir 80-84 fengum ekki sprautuna þegar við vorum yngri? :S kannski gleymdu þau okkur bara, veit ekki ?!?. Djöfull hata ég sprautur, sprautur eru eitthvað sem ég gjörsamlega hata út af lífinu en ég  lét  mig þó hafa það  í morgun, vill ekki fá einhverja helvítis bakteríu og verða ófrjór :(

Á morgun er svo föstudagurinn Þrettándinn og næst seinasti dagurinn minn á klakanum :( Svo í næstu viku er föstudagurinn þrettándi Össss :haha: slæmt mál tveir í röð :S. En á morgun fer ég auðvitað á brennuna  í Mos og glápi á flugelda sýninguna. Hún hefur aldrei klikkað ! alveg mögnuð flugelda sýning, ef þið viljið sjá alvöru flugeldasýningu komið þá í mos á morgun klukkan 21. Eftir það verður svo gert e-h, kíkt í bæinn eða e-h 8) kemur í ljós...

En í kvöld ætla ég að gera mér eitthvað til skemmtunnar, er ekki búinn að ákveða hvad skal gore, en margt tiil boða t.d. spila Issaran, fara á tónleika með Lights on the high way eða fara á nýju myndina "Hostel" hrollvekja eftir snillingin man ekki hvað hann heitir :S en er vinur snillingsins Tarantino. Later


» 2 hafa sagt sína skoðun