|
|
14.02.2007 13:01:44 / johannfan
Ég get nú ekki sagt að ég sé að standa mig í þessum blessuða
blogg heimi, en nú bæti ég mig og ég lofa að koma með nýjar
myndir inn bráðlega 
Það sem er að frétta af mér er allt ágætt, gengur vel í skólanum,
veðrið gott og skemmtilegt efni að gerast framundan. Ég er ný
búinn í prófunum og er kominn með þrjár niðurstöður úr
prófunum (9,8,7) sem ég er svona þokkalega ánægður með. Í þessari
viku er ég í svona semí frí´i, á reyndar eftir að skila einu stóru
lokaverkefni sem ég þarf að skila eftir ca 3 vikur og á nóg eftir
að vinna í því.
Um daginn sótti ég um að fara sem skiptinemi í eina önn í annan
skóla, ég valdi þrjá skóla, tvo í USA og einn í Israel. Fyrir viku
síðan fékk ég svo svar að ég fengi inn
er í Israel (",) Ég er búinn að velta því fyrir mér hvort ég ætti
að fara en er ekki að komast að neinni niðurstöðu enn, sumar segja
að ég ætti að ég ætti að nýta mér þetta tækifæri en sumir segja að
þetta sé ekkert sniðugt, en sjálfum finnst mér þetta vera spennandi
en málið er að það tekur alltaf smá tíma að koma sér fyrir, kynnast
fólki, aðlagast landinu og þar sem þetta er bara ein önn og næst
seinasta önnin í náminu mínu, veit ég ekki hvort þetta sé sniðugt
námslega séð! en Jæja held að þetta sé komið gott í bili, ég verð
að drífa mig aðeins í skólan en núna, ég lofa að vera
duglegari að skrifa og hef ég helling til þess að skrifa um
núna... Ciao ciao
»
07.01.2007 20:29:52 / johannfan
Nú er maður búinn að taka langt og gott frí frá blogginu og er
kominn tími á að maður byrji aftur að blogga, eða reyna það
allavegana... :/ Ég er búinn að vera í rúmar tvær vikur á klakanum
í fríi og er búinn að hafa það ótrúlega nice, hitta marga, borða
góðan mat og chilla. Eftir rúmar tvær vikur hérna er ég kominn með
smá heimþrá til Barce, komast í smá hita og mína menningu. Skólinn
minn byrjar á morgun og hlakkar mig mikið til, reyndar missi ég af
fyrsta skóladeginum vegna þess að ég fer ekki fyrr en í nótt í
flugið. Helgin mín var þokkaleg, ég náði að skipuleggja tíman minn
vel var duglegur að læra og gera ýmisslegt sem ég þurfti að gera
áður en ég yfirgef dökku eyjuna. Í gær fór ég í partý til B.B.
vinar míns þar sem flestir vinir mínir voru og var það frábært
kveðju party...  En allavegana þeir sem ég hitti í frí´inu takk
fyrir stundirnar og hlakka til að sjá ykkur aftur  Hafið þið hin
það sömuleiðis gott  Ciao
»
08.11.2006 00:49:59 / johannfan
Hvað er málið með þessa yndisleg kakkalakka í ár ? ég fer að halda
að er einhver sé að rækta þessi kvikyndi í íbúðinni fyrir neðan
mig, þeir eru út um allt, þessi bakteríu ógeð, inn í herberginu,
stofunni, eldhúsinu (í matnum) og baðherberginu. Þegar það kólnar
smá úti streyma þeir inn í íbúðinar, en ég held samt að það sé
einhver faraldur í ár þar sem það voru fáir sem engir í fyrra.
Allavegana Það er búið að gerast margt síðan ég bloggaði seinast og
ætla ég að skrifa um það helsta og reyna að gera það í stuttum
texta svo að fólk nenni kannski að lesa það. Síðastliðinn föstudag
kom Arnar vinur minn í heimsókn og óvæntur gestur með honum eða
Bjarni B æskuvinur og vinur minn, það er óhætt að segja að fá svona
óvæntar heimsóknir kæta mann verulega......  Við félagarnir
gerðum ýmisslegt þessa helgi, fórum á ströndina, versluðum,
skoðuðum frægar byggingar og djömmuðum þokkalega (",) því miður var
helgin mjög fljót að líða og fyrr en varir var kominn mánudagur og
flug hjá þeim um kvöldið. Bjarni ákvað að athuga hvort hann gæti
breytt fluginu og farið heim á föstudegi sem hann svo gerði, við
ákváðum að taka því rólega þessa daga sem hann átti eftir hérna og
ég sýndi honum borgina betur og fáeina klúbba líka  En það sem er
að frétta af mér er mest lítið, skólinn byrjaður á fullu og
verkefni hlaðast upp. Í gær var ég svo óheppinn að gleyma að ejecta
ekki harðadisknum mínum og náði ég að rugla hann e-h á því, get
allavegana ekki farið inn í hann lengur  öll, mp3 lögin mín og
bíómyndirnar sem ég var búinn að safna er horfið í bili vona ég.
jæja held að þetta sé komið gott í bili... Adios
»
23.10.2006 11:06:08 / johannfan
Jæja, kominn mánudagur og ný vika framundan, helgin hjá mér var
mjöf fín. Það sem stóð upp úr var þrítugs afmæli Jóhans vina míns
frá Svíðþjóð, við byjuðum á því að fara út að borða á Hard Rock
Café sem er að mínu mati besti veitingarstaðurinn hérna í Barce,
eftir það fórum við svo og á klúbb saman og skemmtum okkur þar til
morguns. Á laugardaginn vöknuðum við snemma eða klukkan 12 og fórum
á æfingu, eftir hana fórum við í smá sólbað og chilluðum á plaza
hérna rétt hjá íbúðinni minni. Um kvöldið hittum við svo ítölsku
vini mína sem ég er ekki búinn að að hitta í nokkra mánuði og voru
þeir hressir eins og venjulega, var svo kominn snemma heim eða
klukkan ca. 22, ógeðslega þreyttur og var sofnaður fyrir klukkan
24... Í gær var svo bara chillað að mestu leiti, fór í gym´ið, kom
svo heim og spilaði playstation í nokkra tíma  )svo um kvöldið
máluðum við mynd í stofuna (ætla að taka mynd á henni á eftir og
sýna ykkur hana, hún er vandgefin flott) fór svo á bar og horfði á
Real madrid vinna Barcelona  ((( 2-0 þar sem Eiður fékk dauða færi
til að jafna leikinn en k´lúðraði því einhvernvegin, fuck it...
Allavegana, ég byrja loksins í skólanum í dag, hlakka mikið til. Á
að mæta klukkan 14:30 í smá presiontation og fá stundartöfluna 
Þessi vika verður örugglega mjög skemmtileg og spennandi og ekki er
það verra að það er spáð mjög fínu veðri hérna næstu vikuna, spáð
frá 24 stigum í 28 stig og sól (",) svipað og heima bara híhí...
verð að þjóta ciao........ p.s. eins og þið sjáið hér fyrir ofan
fór allt í rugl með árin og merkin, ef þið viljið vita í hvaða
merki þið eruð látið mig þá bara vita og ég segi ykkur það hér á
blogginu, comment
»
22.10.2006 11:19:00 / johannfan
Hundur
Kanína
Api 1946
1951
1944 1958
1963
1956
1970
1975
1968 1982
1987
1980 1994
1999
1992 2006
2011
2004
Svín
Dreki
Hani 1947
1952
1945 1959
1964
1957 1971
1976
1969 1983
1988
1981
1995
2000
1993 2007
2012
2005 Rotta
Snákur 1948
1941 1960
1953 1972
1965 1984
1977 1996
1989 2008
2001 Geit
Hestur 1949
1942 1961
1954 1973
1966 1985
1978
1997
1990
2009
2002
Tígrisdýr
Kind 1950
1943 1962
1955 1974
1967 1986
1979 1998
1991 2010
2003
»
20.10.2006 12:34:55 / johannfan
Fjölskyldan sat við matarborðið á sunnudagskvöldi.
"Pabbi, hvað eru margar gerðir af kvenmannsbrjóstum til ?"
Spurði sonurinn allt í einu. "Þær eru þrjár, sonur sæll.
Þegar að konan er á þrítugsaldri eru brjóst hennar eins og
melónur, kringlótt og stinn.
Á fertugs- og fimmtugsaldrinum eru þau eins og perur, enn falleg
er farin að lafa svolítið.
Þegar að konan er komin yfir fimmtugt þá má líkja brjóstum
hennar við lauka."
"Lauka ?" "
Já, þú horfir og þú grætur !"
Smáþögn.
"Mamma, getur þú sagt mér hve margar tegundir ef tippum eru
til"
spurði dótturin.
Mamman brosti, leit á eiginmann sinn og sagði:"
Maðurinn gengur í gegnum þrjú stig.
Þegar að hann er á þrítugsaldri er limur hans eins og eik,
öflugur og harður.
Á fertugs- og á fimmtugsaldri er hann eins og birki,
sveigjanlegur en traustur
og þegar að hann er kominn yfir fimmtugt má líkja honum við
jólatré!"
" HA, jólatré ?" "
Já hann þornar hratt upp og kúlurnar eru bara til skrauts
»
18.10.2006 21:26:47 / johannfan
seinustu daga hef hef ég lítið annað gert en að breyta
íbúðinni minni, málað hana, keypt nýtt drasl í eldhúsið og í
íbúðina t.d. þvottavél, örbylgjuofn og ryksugu eftir að allt þetta
eyðilagðist á sama degi eða á föstudaginn 13´ándanum, það fór allt
í rugl þennan fokking dag ! &#$%&$% (",) Allavegana hefur
margt skemmtilegt skeð eftir þennan dag ,ég er t.d. búinn að skipta
um herbergi, er ég kominn með mjög stórt herbergi með svölum og
öllu, ekki verra að vakna með opið út á svalir, heitur gustur sem
blæs inn í herbergið, sólar lykt :/ og hafa nóg pláss í herberginu
 ) Það styttist í að skólinn byrjar hjá mér og djö hlakkar mig til
!!! hitta bekkjarfélagana byrja í nýjum skemmtilegur áföngum.
Í kvöld fór ég svo að horfa á leikinn Barca vs Chelsea (búinn að
bíða lengi spenntur eftir þessum leik) fór á bar hérna rétt hjá,
Eiður byrjaði inná en var tekinn út af eftir 62 min, þegar Barca
voru 0-1 undir. Eftir að hann var tekinn út af datt leikurinn
gjörsamlega niður og þeir sýndu ekki það sem þeir geta. Ég var
nokkuð ákveðinn að hitta ítölsku félaga mína eftir leikinn og gera
e-h skemmtilegt með þeim en þessi leikur eyðilagði kvöldið fyrir
mér  ( og í staðinn fyrir að fara út er ég heima að skrifa blogg
og vera svektur, skrítið hvað einn leikur getur haft mikil áhrif á
mann !!!! Ciao amigos
»
11.10.2006 14:52:13 / johannfan
Hvernig er það, er Steve O einn meðlima jack ass klíkunar allllveg
sama um sjálfan sig eða um líkaman á honum allavegana. Ég var að
horfa á nýju Jack ass myndina í gær og shit hvað hún er brutal,
fooook hvað þessir gaurar eru vandgefnir ! hvaða venjulegur maður
myndi meika að drekka hesta brund, láta snák bíta á sér kónginn,
hella heilum bjór upp í rassgatið á sér, láta blóðsugu sjúga á sér
augað, láta öngul í gegnum aðra kinnina á sér og festa sig í
veiðistöng á bát út á sjó og reyna að láta hákarla bíta sig... Það
er e-h að hahahaha. Í gær fór ég, Rikki, Frikki og Árni í Barcelona
casino´ið. Þar sem ég hef aldrei farið í casino áður fannst mér
þetta vera mjög skemmtilegt. Ég reyndar spilaði ekkert, fylgdist
bara með fólki spila. Sumt fólk er svo sjúkt, liggur við að það sé
ruglaðara en Jack Ass gauranir en samt öðruvísi geðsýki. Þarna var
fólk með hátt uppí milljón í spila peningum og voru að veðja, ef ég
ætti nóg af peningum eða of mikið af peningum myndi ég kannski gera
þetta. Mér fannst svoldið fyndið hvað maður varð allt í einu
skuggalega aktívur og hress þegar maður kom inn í spilavítið, ég
spurði Árna hvort hann fyndi fyrir þessu líka, þá sagði hann mér að
þeir dæla súrefni í spilavítið svo að fólk sé aktívt og hresst,
sniðugt... Í kvöld er ég svo að fara með nokkrum íslendingunum og
sýna þeim nokkra flotta klúbba uppí Tipitabo og fá mér kannski í
glas... Held að þetta sé nóg í bili. Held að þetta sé komið nóg í
bili. P.S. Þeir sem skrifa í comment, skrifið undir réttu nafni eða
e-h. EKKI undir nafn annars!!! ciao
»
05.10.2006 11:43:57 / johannfan
Hvernig er það er e-h mikið mál að setja myndir inn á minnsirkus í
dag, ég veit ekki hvort það sé bara mín tölva, hvort ég sé að gera
e-h vitlaust eða hvort það er einhver error í gangi. Þar sem ég hef
nú gert það áður myndi ég helda að þetta væri bara einhver error.
En allavegana er allt gott að frétta af mér, maður hefur það
allavegana ágætlega þessa dagana, kaffihús á kvöldin, úti á daginn
t.d. á stöndinni. Maður getur allavegana ekki kvartað, marr verður
að nýta þessa hlýju daga á meðan að maður getur hérna á
Spáni, styttist í veturinn og þá er ekki hægt að vera á
bolnum úti eins og margir halda  Á mánudaginn fór ég á
skrallið með honum Rikka félaga mínum við fórum út að borða með hóp
af krökkum og síðan á klúbb í miðbæ í Barcelona (eða á Cataloniu
torgi). Þetta er djamm sem ég mun alltaf muna eftir vegna þess
hversu mikla vitleysu við gerðum og átti Rikki heiðurinn á því
(slæmur félagsskapur)  Núna er maður bara að chilla heima og
horfa á X-men 3, djöfull er ég að fíla þessar X-men myndir. Hef ég
ekki mikinn áhuga á bull myndum en finnst þessar myndir vera
algjört snilld... jæja hef þetta ekki lengra í bili en ef þið vitið
e-h um hvort það sé e-h klikk með að setja myndir inn á minnsirkus,
tell me about it  mi amigos ... ciao
»
01.10.2006 22:27:19 / johannfan
Jæja þá er maður kominn aftur til Barcelona eftir að hafa verið í 3
mánaðar fríi á Íslandi. Ég flaug með vél frá Futura á
fimmtudagskvöldið, vélin var troðfull með blind fullu íslensku
gömlu fólki sem kunnu engan vegin að haga sér um borð í vélinni. Ég
hef aldrei séð annað eins, fólkið var að rífast, liggjandi á
gólfinu, slummast, blístrandi á flugfreyjunar og það voru
allavegana 3 sem ældu í vélinni og 2 í vélina sjálfa... Vinkona mín
vinnur hjá Futura og var stödd í vélinni og hún sagði að hún hafi
aldrei séð annað eins. (",) En allavegana helgin mín var rosalega
fín. Atli og Sindri komu í heimsókn til mín yfir helgina og fórum
við með hóp af íslendingum saman út að borða og svo á djammið. Við
fórum meðal annars á 7 hæða diskótek þar sem dj John digweed var að
spila, foook hvað það var rugl gaman. Í gær fór ég svo með strákana
í smá vettfangsferð um Barcelona, sýndi þeim Gaudi garðinn og
ýmislegt annað. Í dag sýndi ég þeim Sagrada familia kirkjuna og svo
slöppuðum við af á ströndinni í 30 stiga hita og sól  Nice
!!!!!!! held að þetta sé komið nóg í bili, byð að heilsa ykkur.
Hasta luego
»
18.09.2006 09:42:09 / johannfan
jæja þá er helgin á enda, ótrúlegt hvað hún er alltaf fljót að
líða !!! mér finnst að það ætti að lengja helgina um einn dag
og hafa vikuna 8 daga þ.a.s. 5 virkir dagar og 3
helgidagar og nefna þriðja daginn chilldagur  Helgin mín var
ágæt, tók vel á því á föstudaginn og var allt of lengi á djamminu
og náði að eyðileggja laugardaginn fyrir mér vegna þynnku og
þreytu. Í dag er ég svo búinn að hanga fyrir framan sjónvarpið og
horfa á fótbolta en í kvöld er bíó málið og
ætla ég ekki að deila því með ykkur á hvaða mynd ég er að fara á
hahaha, Hasta luego.....
»
18.09.2006 09:41:44 / johannfan
Vá hvað ég er fucking slakur akkurat núna, ég er búinn að liggja
í sjóðandi heitu baði í örugglega 40 min og vá hvað það er slak -
andi, ég nenni varla að hreyfa á mér puttana á meðan ég slæ
inn á lyklaborðið. Eftir vinnudag eins og ég upplifði í dag (þ.a.s.
að vinna úti í roki og rigningu og vera þar að auki illa klæddur)
er nauðsynlegt að fara í heitt bað og take it easy.... Þetta
foooking veður er að gera mig brjálaðan og það er spáð svona
veðri alla vikuna, þetta gerir það á verkum að ég er kominn
með heimþrá! og aldrei datt mér í hug að ég myndi fá heimþrá á
Íslandi, það eru ekki nema rúmar tvær vikur þar til að ég er farinn
aftur í blíðuna p.s. meistara deildin er byrjuð,,,,,
»
29.08.2006 20:27:41 / johannfan
Ég horfði á fyrsta deildarleik F.C. Barcelona í gær, og fook hvað
hann var góður!!! Við unnum hann 3-2 og skoraði Eiður Smárinn
úrslita markið, djöfull er ég ánægður með hann (",) vá hvað ég get
ekki beðið eftir því að koma mér aftur út í góða veðrið, fara á
ströndina, klúbbana, chill´ið, byrja aftur í skólanum, hitta vinina
og auddað fara á leiki með F.C. Barcelona...
Seinansta helgi hjá mér var nokkuð góð og þétt, ég byrjaði helgina
snemma eða á fimmtudegi með grilli og bjór með félugum, með
kvöldinu bættist svo fólk við í hópinn
og þar á meðal Beta mín eða "Ennisbandið"  sem ég er ekki búinn
að hitta í alltof fuckin langan tíma.
Á föstudagskvöldið reddaði Eddi pé okkur félugunum miðum á Flash
kvöld sem var haldið á Hressó og lá leið okkar á þangað, þar
beið okkar djamm, sniss sniss, grill og frítt vín (",) Dr.
Mister & Mr Handsome voru að spila um kvöldið og voru þeir úút
úúr góðir á því, djöfull eru þeir ruglaðir, snillingar
!!! Svo á laugardaginn var haldið uppí bústaðinn minn í feitt
chill "eða átti að vera þannig" dagurinn byrjaði frekar
rólega þar sem við vorum enn að jafna okkur eftir djammið kvöldið
áður, við fórum í pottinn, spiluðum Yatzy og chilluðum, svo
um kvöldið bættist við fólk og hófst þá party´ið. Bjarni B
eldaði skuggalega góðan mat fyrir okkur, eldaði humar í
forrétt og svína fillet í aðalrétt, ótrúlega gott, skil ekki
afhverju hann fór ekki í kokkinn ! ! ! snillingur. með
kvöldinu ákváðum við að kíkja rétt á Selfoss og fara á e-h
skrall þar, man ekki alveg hvað gerðist þar, en allt í einu vorum
við komnir í e-h hesthús í party(",) hehe foook...
Það er kominn þriðjudagur og Rock Star í kvöld og ætla ég svo
sannarlega að horfa á og styðja Magnan, veit einhver hvar maður
getur gefið honum atkvæði á netinu ? urlið ? En allavegana held að
þetta sé komið gott í bili. Ciao
»
14.08.2006 20:52:22 / johannfan
Shit hvað ég
er að skíta upp á bak í þessum blessaða blogg heimi !!! En
allavegana það sem er að fétta af stráknum ykkar er allt
gott, ég fór til Akureyrar um verslunnarmannahelgin sem var
fínasta skemmtun. Við byrjuðum að tjalda á Þórs svæðinu en
færðum okkur fljótlega frá því svæði eða daginn eftir komuna,
meðal aldurinn þar var ekki hærri en 16 ára og þar sem við
erum orðnir "fullorðnir menn" vorum við ekki alveg að meika
það Seinusta kvöldið fluttum við svo okkur yfir í
Vaglaskóg og join´uðum Mosó crue´ið og var það koman yfir
i´ið fyrir þessa frábæru helgi, án efa besta kvöldið!
Seinustu helgi fór ég svo aftur norður í veiðitúr með 10 góðum
félugum mínum. Við fórum í Reykjadalsánna og gistum þar 3
nætur í skuggalegu húsnæði, þar fengum við okkar eigin
svefnherbergi með baðherbergi og öllu, stórt eldhús og risa stofa
og auddað pottur úti Við veiddum ca 130 silunga og 10 Laxa sem
er fínt. Eftir 3 vikur ætla ég svo aftur þangað með stóra bró,
vinnunni hans og Arnari vini mínum en þá gistum við Arnar bara
einir í þessu klassa húsnæði, shhiittt vilja einhverjar join´a
okkur, nóg pláss getið chillað í pottnum og dundað
ykkur e-h á meðan við erum að veiða hehe (",) P.S. Takk
bró fyrir að bjóða mér í þessa veiðitúra Luv U
Allavegana það styttist í næstu helgi (",) og er hún þokkalega
plönuð.... Málið er að fara í mömmu og pabba bústað á föstudaginn,
grilla, fara í pottinn og hafa það nice, koma svo í bæinn á
laugardaginn´og undirbúa djamm á menningarnótt úffff Það er
komin smá púki í strákinn strax 
Jæja ég held að þetta sé komið gott í bili... Hasta
luego
»
14.08.2006 20:03:35 / johannfan
Shit hvað ég er að skíta upp á bak í þessum blessaða blogg heimi
!!! En allavegana það sem er að fétta af stráknum ykkar er allt
gott, ég fór til Akureyrar um verslunnarmannahelgin sem var fínasta
skemmtun. Við byrjuðum að tjalda á Þórs svæðinu en færðum okkur
fljótlega frá því svæði eða daginn eftir komuna, meðal aldurinn þar
var ekki hærri en 16 ára og þar sem við erum orðnir "fullorðnir
menn" vorum við ekki alveg að meika það  Seinusta kvöldið fluttum
við svo okkur yfir í Vaglaskóg og join´uðum Mosó crue´ið og var það
koman yfir i´ið fyrir þessa frábæru helgi, án efa besta kvöldið!
Seinustu helgi fór ég svo aftur norður í veiðitúr með 10 góðum
félugum mínum. Við fórum í Reykjadalsánna og gistum þar 3
nætur í skuggalegu húsnæði, þar fengum við okkar eigin
svefnherbergi með baðherbergi og öllu, stórt eldhús og risa stofa
og auddað pottur úti  Við veiddum ca 130 silunga og 10 Laxa sem
er fínt. Eftir 3 vikur ætla ég svo aftur þangað með stóra bró,
vinnunni hans og Arnari vini mínum en þá gistum við Arnar bara
einir í þessu klassa húsnæði, shhiittt vilja einhverjar join´a
okkur, nóg pláss  getið chillað í pottnum og dundað
ykkur e-h á meðan við erum að veiða hehe (",)
Allavegana það styttist í næstu helgi (",) og er hún þokkalega
plönuð.... Málið er að fara uppí mömmu og pabba bústað á
föstudaginn, grilla, fara í pottinn og hafa það nice, koma svo í
bæinn á laugardaginn´og undirbúa djamm á menningarnótt úffff
Það er komin smá púki í strákinn strax 
Jæja ég held að þetta sé komið gott í bili... Hasta luego
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|